Málsýni eru stutt sýnishorn af máltjáningu einstaklinga. Tekin er upp dæmigerð máltjáning og skoðuð ítarlega. Oftast er málsýnið laðað fram með samtölum hjá yngri einstaklingum en hjá þeim eldri eru notaðar frásagnir eða útskýringar. Hægt er að skoða orðaforðann, meðallengd segða, fjölda mismunandi orða, málfræðivillur og málfræðiatriði. Einnig má sjá algengi og tíðni orða. Hér er að finna leiðbeiningar um hvernig taka á málsýni, afrita það og vinna úr því. Á heimasíðunni er tenging við tölvuforritið Málgreini (Jóhanna T. Einarsdóttir og Stefán C. Peiser, 2016) en það vinnur úr málsýnunum á fljótlegan og einfaldan hátt. Vinsamlegast vitnið í heimasíðuna á eftirfarandi hátt; Jóhanna Thelma Einarsdóttir (2026). Málsýni Heilbrigðis- og Menntavísindasvið Háskóla Íslands. https://malsyni.hi.is